{"product_id":"moya-kukicha-lifraent-graent-te-15-tepokar","title":"Moya Kukicha lífrænt grænt te, 15 tepokar","description":"\u003cp\u003eFíngert grænt te úr greinum og stilkum te plöntunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eBragð: \u003c\/strong\u003eFínlegt, sætt, með örlitlum keim af hnetum og umami.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eLitur: \u003c\/strong\u003eLjós grænn.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eUpprunaland:\u003c\/strong\u003e Japan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eKassinn inniheldur 15 lífbrjótanlega te pýramída.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKukicha á rætur sínar að rekja til Uji-héraðs í Japan. Þar brugguðu bændur sitt eigið einstaka te — kukicha — úr eftirstandandi greinum og stilkum eftir að hafa selt verðmætustu laufin og blómknappana.\u003cbr\u003eÁ japönsku þýðir „kuki“ kvistur og „cha“ þýðir te. Moya Kukicha kemur frá lífrænni ræktun á eyjunni Kyushu og er létt ristað, sem gefur því sterkara bragð. Kukicha hentar mjög vel til að nota í kaldbruggað te.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEiginleikar Kukicha\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eÖfugt við önnur græn te þá inniheldur Kukicha mikið magn L-theaníns og einstaklega lítið af koffíni. Ástæðan er sú, að ljóstillífun, sem breytir L-theaníni í katekín, á sér ekki stað í stilkunum. Það hentar því vel börnum, barnshafandi konum og öldruðum og er tilvalið te til að drekka á kvöldin.\u003cbr\u003eEn, ásamt öðrum japönskum grænum teum er það engu að síður rík uppspretta af katekínum og andoxunarefnum. Að drekka kukicha bætir meltingu og hjálpar til við að hægja á öldrun, hreinsar eiturefni, getur lækkað slæma kólesterólið, viðheldur eðlilegu blóðsykursgildi, stuðlar að heilbrigðum tönnum og tannholdi og bætir jafnvel andlega líðan. Lauf þess innihalda auðupptakanlegt C-vítamín, beta-karótín, fólínsýru, kalíum, kalsíum og fosfór.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eAð laga Kukicha\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eMagn: Einn tepoki í 200 ml af vatni.\u003cbr\u003eHitastig vatns: 80°C\u003cbr\u003eLátið tepokann liggja í vatninu í 2-3 mínútur\u003cbr\u003eHægt er að nota sama tepokann tvisvar\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInnihald:\u003c\/strong\u003e 100% lífrænt japanskt grænt Kukicha te.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllt te frá Moya er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.\u003c\/p\u003e","brand":"Mistur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51924138164535,"sku":"MM-MT604","price":1045.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/2217\/2589\/files\/910kukitcha_2.png?v=1775915546","url":"https:\/\/mistur.is\/products\/moya-kukicha-lifraent-graent-te-15-tepokar","provider":"Mistur","version":"1.0","type":"link"}