{"product_id":"kanil-ilmkjarnaolia-10-ml-amphora-aromatics","title":"Kanil ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics","description":"\u003cp\u003eKanil ilmkjarnaolía  (Cinnamomum zeylanicum)\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞessi olía hefur dásamlegan, sætan og kryddaðan ilm og er þekkt fyrir að vera einstaklega upplyftandi og vermandi. Fullkomin olía fyrir kalda mánuði til að hressa sálina og andann og kitla skilningarvitin. \u003cbr\u003eKanil ilmkjarnaolían er náttúrulega örvandi og getur hjálpað við einbeitingu við hin ýmsu verkefni í skóla eða vinnu. Vegna vermandi eiginleika er frábært að nota hana í nudd blöndur til að lina þreytu og eymsli í aumum vöðvum (muna að þynna hana að hámarki í 1% fyrir notkun á húð).\u003cbr\u003eKanil ilmkjarnaolía skapar dásamlega stemningu á heimilinu, sérstaklega yfir hátíðirnar. Með því að blanda henni saman við negul og appelsínu færðu þennan eina sanna jóla- og hátíðarilm sem fyllir heimilið gleði.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOlían er unnin með gufueimingu úr laufunum og er miðtóna\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKanil ilmkjarnaolía blandast vel með cardamom, frankincense, grapefruit, lavender, rosemary og timian.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eHægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum.\u003cbr\u003eFyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVarúð:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eTil að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.\u003cbr\u003eFyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppruni: Sri Lanka\u003cbr\u003ePakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Amphora Aromatics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51741344596279,"sku":"AA-012","price":1670.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/2217\/2589\/files\/1_27914d30-78c4-4577-aeeb-bfb48cc047fa.png?v=1774091104","url":"https:\/\/mistur.is\/products\/kanil-ilmkjarnaolia-10-ml-amphora-aromatics","provider":"Mistur","version":"1.0","type":"link"}