Hreindýrasápa með blóðbergi og rósmarín
Alíslensk handsápa handgerð á Íslandi. Í þetta sápustykki er notuð hreindýrafita frá austurlandi sem annars hefði farið í urðun. Handtýnt íslenskt blóðberg af vesturlandi og finna má laufléttan ilm af rósmarín.
Íslenska hreindýrasápan er sérstaklega rakagefandi og í bland við blóðberg og rósamarín gerir hún húðina silkimjúka.
Íslenska hreindýrasápan er heimagerð og því hvert og eitt stykki einstakt og gert sérstaklega fyrir þig. Sápufólki vonar að þú njótir sápunnar jafn mikið og þau nutu þess að búa hana til.
Innihald: Hreindýrafita, vatn, blóðberg, sodium hydroxide, rósmarín ilmkjarnolía.
Án litar og rotvarnarefna
Þyngd uþ. 80-90 gr.
Blóðberg hefur róandi áhrif á sál og líkama og hjálpar þér að slaka á eftir heitt bað.
Rósmarin hefur bólgueyðandi eiginleika og hjálpar til við að draga úr þrota í húð. Jafnframt er talið að rósmarin geti hjálpað til við ýmsa húðsjúkdóma t.d. Exem, dermatitis og psoriasis.
(hafu samband við húðlækni ef þú hefur alvarlegan húðkvilla)
Sápunni er handpakkað í umbúðir úr endurunnum pappír.