{"product_id":"handaburdur-i-fostu-formi-symmetry","title":"Handáburður í föstu formi – Symmetry","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSymmetry handáburður í föstu formi – fullkomlega endurnærandi handáburður, úr okkar höndum og á þínar.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Symmetry handáburðinum er sérstök og endurnærandi ilmkjarnaolíublanda úr rósgeraníum, jasmín, sætri möndluolíu og lárviðarlaufi. Allt sett saman á faglegan hátt og skapar góða samhverfu eins og í róandi heilsulind. \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð þrefaldri virkni nærir handáburðurinn húðina mjög vel, er rakagefandi og hjálpar til við endurnýjun jafnvel á þurrustu húð. Blanda af kakósmjöri, bývaxi og kókosolíu eru lykillinn að umbreytingu húðarinnar með reglulegri notkun.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIlmkjarnaolíurnar í hinni sérstöku Symmetry blöndu hjálpa til við að koma jafnvægi á náttúrulega olíuframleiðslu húðarinnar og lágmarka útlit svitahola. Styrkur andoxunarefna og bólgueyðandi eiginleikar olíanna hjálpa einnig til við að draga úr slappleika húðarinnar og stuðla að hraðari dofnun ör og lýta.\u003cstrong\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eLúxus handáburður sem klístrast ekki og gefur húðinni langvarandi næringu.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAðeins hreinustu innihaldsefni\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eInniheldur aðeins náttúruleg litarefni. Án rotvarnarefna og ilmolía.100% náttúrulegt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHandunninn í Skotlandi\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHandáburður í föstu formi sem má ferðast með\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEkki prófað á dýrum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEndurnýtanlegar umbúðir\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eStærð handáburðar: 6,5 x 4 x 2 cm.\u003cbr\u003eStærð dósar: 9,5 x 6 x 2,5 cm.\u003cbr\u003e50 gr.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eInnihald og virkni.\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eBývax\u003c\/strong\u003e sem vörn gegn skaðlegum umhverfisáhrifum. Hjálpar til við að draga úr þurrki með því að halda raka inni í húðinni.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eKakósmjör\u003c\/strong\u003e inniheldur nauðsynlegar fitusýrur sem næra og vökva húðfrumur um leið og það veitir vernd gegn krefjandi umhverfisaðstæðum, skemmdum af völdum sólarljóss og sindurefnum. \u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eKókosolía\u003c\/strong\u003e býr yfir bakteríudrepandi eiginleikum, nærir húðina, bætir heilbrigði hennar og eykur ljóma og styrkir náttúrulega fegurð hennar. \u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eRose geranium\u003c\/strong\u003e hjálpar til við að viðhalda jafnvægi á náttúrulegri fituframleiðslu húðarinnar. Dregur úr sýnileika slapprar húðar, stuðlar að því að ör og önnur lýti dofna hraðar ásamt því að róa og endurnæra.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eJasmín\u003c\/strong\u003e ilmkjarnaolía stuðlar að fallegri og heilbrigðri húð þar sem styrkur andoxunarefna og bólgueyðandi þátta er mjög hár í henni.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eRósa og lárviðarlauf\u003c\/strong\u003e hafa bólgueyðandi eiginleika sem draga úr bjúg í húðinni án þess að draga úr raka.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eÞegar þú tekur handáburðinn úr umbúðunum, nuddaðu stykkinu varlega yfir lófa og handarbök, rétt eins og þú gerir með handsápu og leggðu áherslu á þurrkasvæði.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar þú nuddar kreminu á húðina, beittu smá þrýsting til að hita vefinn undir yfirborði húðarinnar og örva blóðráðsina. Njóttu nuddsins, áferðarinnar og ilmsins. \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEf tíminn leyfir, dekraðu við þig og gefðu sjálfri\/sjálfum þér smá auka handanudd sem er fljótleg og slakandi leið til að bæta liðleika í fingrum og úlnlið, auka blóðflæði og draga úr verkjum í vöðvum og liðum.\u003c\/p\u003e","brand":"ENSC","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51924128432439,"sku":"ENSC-HC-013","price":2890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/2217\/2589\/files\/Symmetry_910_2.png?v=1775747821","url":"https:\/\/mistur.is\/products\/handaburdur-i-fostu-formi-symmetry","provider":"Mistur","version":"1.0","type":"link"}