Glerskál með bambus loki 10 x 10 - 250 ml.
Venjulegt verð
1.690 kr
Glerskál með bambus loki sem er tilvalin til geymslu og framreiðslu matvæla. Skálarnar eru framleiddar samkvæmt ítrustu stöðlum fyrir matvæli og eru 100% endurvinnanlegar. Skálin þolir uppþvottavél og örbylgjuofn upp að 70°C en lokið þarf að þvo í handþvotti og má ekki fara í örbylgjuofn.
Skálarnar staflast hver ofan á aðra, lokið er þétt og þú sérð innihald þeirra auðveldlega og því engin hætta á að smá-afgangarnir gleymist í ísskápnum.
Skálarnar koma í stað einnota umbúða og eru lausar við BPA.
Stærð: 10 x 10 x 5 cm.
Rúmmál: 250 ml.