{"product_id":"basil-ilmkjarnaolia-lifraen-10-ml-amphora-aromatics","title":"Basil ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics","description":"\u003cp\u003eBasil ilmkjarnaolía (Ocimum basilicum)\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSætur basil ilmur.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞessi ilmkjarnaolía er sérstaklega góð á húðina vegna kælandi eiginleika hennar (inniheldur 42-46% Linalol). Hún þykir því góð í blöndur til að meðhöndla ertingu og roða í húð, bruna og skordýrabit.  Olíuna má einnig nota í ilmolíubrennara fyrir upplífgandi og orkugefandi áhrif. \u003cbr\u003eBasil getur líka gagnast í nudd á spennta og auma vöðva og setja má hana í baðolíu eða ilmolíulampa til að vekja skynfærin og virkja heilann.\u003cbr\u003eOlían er unnin með gufueimingu úr blómum og laufunum og er hátóna.\u003cbr\u003eBasil ilmkjarnaolían blandast sérstaklega vel með sítrus olíum svo sem bergamot, sítrónu og grapefruit en einnig neroli, geranium og lavender. \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNotkun:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eHægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum.\u003cbr\u003eFyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVarúð:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eTil að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.\u003cbr\u003eFyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppruni: Frakkland\u003cbr\u003ePakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Amphora Aromatics","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51741369729335,"sku":"AA-276","price":2755.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/2217\/2589\/files\/3_f8da89a0-dd5f-4a28-a40b-5202131e7562.png?v=1774091155","url":"https:\/\/mistur.is\/products\/basil-ilmkjarnaolia-lifraen-10-ml-amphora-aromatics","provider":"Mistur","version":"1.0","type":"link"}