Sápuskeljar

Sápuskeljar

Venjulegt verð 1.990 kr
Náttúrulegt þvottarefni sem hentar fyrir alla vefnaðarvöru ásamt silki og ull. Má þvo við 30-95°

Pakkinn inniheldur 250 gr. af sápuhnetuskeljum og lítinn bómullarpoka sem setja á hneturnar í. Ef heitt vatn er notað ættu tvær hnetur að duga, en annars gæti verið ágætt að setja 4-6 stk. í pokann. Sá poki er síðan settur í tromluna með fötunum. Hneturnar má nota í nokkur skipti (+/-sex skipti) og þær mega þorna á milli þess sem þær eru notaðar. Þegar þær eru orðnar gráar og mjúkar og ekki eins glansandi fínar og þegar þær voru í fyrstu er mál til komið að setja þær í moltukassann.

Kostir þess að nota sápuhnetur.
  • Endurnýjanlegar auðlindir
  • Hentar fólki með ofnæmi fyrir hefðbundnu þvottarefni
  • Bæði fyrir hvítan og litaðan þvott
  • Gott fyrir húðina, þvottinn og umhverfið
  • 100% niðurbrjótanlegt

Sápuhnetutréð vex aðallega á Indlandi og Nepal og getur náð allt að 15 mtr. hæð. Ávöxtur trésins er einfaldlega kallaður sápuhnetur. Virka efnið, Saponine, er að finna í skel hnetunnar og hefur einstaka hreinsunareiginleika ásamt því að vera bakteríudrepandi. Þegar það kemst í snertingu við heitt vatn myndar það milt og mikið löður.

Má einnig nota til að búa til hársápu, uppþvottalög

Umsagnir

Byggt á 1 umsögn Skrifa umsögn

Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki