Drykkjarflaska, með tesíu - stál
Drykkjarflaska, með tesíu - stál
Drykkjarflaska, með tesíu - stál

Drykkjarflaska, með tesíu - stál

Venjulegt verð 5.990 kr

                

Qwetch stál tedrykkjarflaskan er hágæða vara með einstaka einangrun. 

Hér er á ferðinni 300 ml. drykkjarflaska úr tvöföldu stáli og þéttu stálloki. Hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja taka heitt te með sér og láta það lagast á meðan ferðast er. Þú ákveður hversu lengi þú lætur bragðgjafann liggja í flöskunni og notar til þess aðra hvora síuna, en tvær misstórar síur fylgja með. 

Kork ermarnar sem fylgja teflöskunni eru úr þunnum korkblöðum frá Portúgal. Ermarnar sem eru sérstaklega blettavarðar eru settar saman í Frakklandi.

  • Áskrúfað stállok
  • Flaskan rúmar 300 ml.

Um vöruna

  • Innra og ytra lag úr stáli 304 (18/8)
  • Innra byrði án allrar húðunar og lakks (ólíkt álíláta)
  • Loft-, og lekaheld – silicon þéttir í loki
  • Kemur með tveimur síum úr ryðfríu stáli 304 (18/8) – grunn og djúp
  • Heldur heitu í allt að 5 klst. og köldu í allt að 7 klst.
  • Mikið viðnám gegn tæringu
  • Hefur ekki áhrif á bragðgæði
  • Stærð: 18,4 cm. á hæð og 7,2 cm. þvermál. Þvermál ops 5,3 cm.
  • Þyngd: 290 gr.
  • Umbúðir: Pappahólkur og bóluplast (vinsamlegast flokkið í viðeigandi tunnur)

Notkun síu
Flöskunni fylgja tvær síur fyrir sitthvora síunaraðferðina allt eftir tegund drykkjarins, lengd síunnar og/eða smekk manna 

  • Lengri sían gefur styttri síunartíma eftir þörf hvers og eins þar sem auðvelt er að fjarlægja síuna með bragðgjafanum.
  • Með styttri síunni færðu langt og stöðugt innrennsli bragðgjafans, eins og kínversk hefð segir til um.

Notkunarleiðbeiningar:

  • Setjið hvorki í örbylgju- né bakarofn
  • Frystið ekki
  • Setjið ekki meira í flöskuna heldur en leiðbeiningar segja til um
  • Til að forðast leka, passið að skrúfa lokið rétt og þétt á 
  • Varist að börn leiki sér með flöskuna ef heitir drykkir eru í henni
  • Setjið ekki kolsýrða drykki í flöskuna þar sem þrýstingur getur margfaldast
  • Geymið ekki brjóstamjólk í flöskunni
  • Geymið flöskuna opna á milli notkunnar

Umhirða:

  • Þvoið alla hlutana með sápuvatni fyrir notkun. Skolið vel og þurrkið
  • Fyrir enn ítarlegri þrif mælum við með því að þvo ílátið með þvottabursta, heitu vatni og teskeið af matarsóda
  • Ef þurfa þykir, látið liggja í bleyti í nokkra klukkutíma fyrir skolun
  • Notið ekki þvottarefni sem innihalda bleikiefni, klór, fægilög (svarfefni) eða/og sterk hreinsiefni
  • Við mælum með handþvotti

Tillaga:

Til að drykkurinn haldist heitur sem lengst, fyllið ílátið með heitu vatni til að verma flöskuna að innan og látið standa í nokkrar mínútur. Tæmið ílátið og fyllið aftur með því sem halda á heitu.


    Deila þessari vöru


    Meira úr þessum vöruflokki