Moya Matcha - Traditional - lífrænt grænt te, 30 gr.
Moya Matcha - Traditional - lífrænt grænt te, 30 gr.

Moya Matcha - Traditional - lífrænt grænt te, 30 gr.

Venjulegt verð 3.375 kr

Traditional

Hágæða lífrænt matcha með jafnvægi á millli bitursætu bragðinu, rjómalagaðri áferð og grænum lit. Ríkulegt tebragðið hentar fullkomlega til að drekka teið eitt og sér en jafnframt má nota það í smoothies og límonaði. 

Upprunaland: Japan
Bragð: Yfirvegað og jafnt bragð með beiskjukeim
Mælt með í : Matcha athöfn, hentar í bæði heitt og kalt vatn, matcha latte, matcha límonaði, matcha kokteila.
Innihald: 100% lífrænt vottað matcha grænt te úr fyrstu og annari uppskeru.

Magn: 30 gr. 

Hvernig.

Hefðbundin leið til að undirbúa matcha kemur frá japönsku teathöfninni. Það felur í sér að nota matcha skál, bambus pískara –chasen- og bambus skeið -chashaku. Settu 2 chashaku skeiðar af matcha (1,5 g) í matcha skál og helltu 100 ml af heitu vatni yfir (ekki heitara en 80 °C). Þeytið matcha kröftuglega með pískaranum, frá úlnliðnum í m-laga, ekki hringlaga, hreyfingu. Eftir um það bil 20 sekúndur ætti að hafa myndast fullkominni jade-græn froða. Þegar búið er að þeyta teið getur þú bætt við meira vatni til að gera það daufara.

Það er álíka auðvelt að blanda matcha saman með litlum hand mjólkuflóara. Bætið flatri teskeið af matcha (1,5 g) í bolla eða glas og hellið 100 ml af heitu vatni í glasið. Blandið vel saman og bætið meira vatni við ef vill. 1 teskeið gefur þér venjulega 200-250ml af matcha drykk. Rétt eins og með kaffi finnst sumum gott að drekka sterkan matcha espresso, aðrir vilja frekar bæta við vatni. Þú getur líka blandað matcha saman við safa eða mjólk.

Þú getur undirbúið matcha þinn ótrúlega hratt í glerhristara eða í venjulegri flösku: bættu bara matcha við vökva að eigin vali (vatn, safi eða mjólk), hristu og teið er tilbúið!

Matcha Latte Undirbúningur: Blandið einni teskeið af matcha saman við lítinn skammt af heitu vatni. Bætið heitri mjólk út í. Þú getur sætt matcha latte með skeið af hunangi, hlynsírópi eða agave sýrópi.

Moya matcha traditional fæst úr fyrstu og annari uppskeru úr teplöntum sem eru sérstaklega skyggðar fyrir beinu sólarljósi. Skyggingin leiðir til hærri blaðgrænu og L-Theanine innihalds og ríkari grænum lit. Fersku laufunum er síðan safnað saman, þau þurrkuð og möluð í duft. Moya matcha traditional hefur yfirvegað beiskt/sætt bragð, rjómalagaða áferð og berggrænan lit. Bragðmikið teið er tilvalið að drekka eitt og sér eða blanda í latte, búst og límonaði. Það má útbúa með hefðbundnum hætti í matcha skál eða einfaldlega í hristara.

Um Moya matcha

Moya Matcha Traditional er ræktað í Uji-héraði í Kyoto, en það er þekkt fyrir ræktun á hágæða grænu tei í yfir 800 ár. Uji-svæðið er frægt fyrir frjósaman jarðveg og hreint vatn. Grænu teplönturnar þar búa við kjöraðstæður til vaxtar þökk sé hæðum sem veita gott sólarljós og algengs þokumisturs sem verja viðkvæm blöð fyrir frosti og mikilli úrkomu. Moya Matcha er vandlega ræktað og uppskorið á litlum lífrænum teökrum í eigu hverra fjölskyldu. Það er síðan unnið á staðnum í Japan og sent í litlum lotum til að tryggja hámarks ferskleika fyrir allar tegundirnar okkar. Þetta hjálpar til við að varðveita alla eiginleika teblaðsins og viðhalda miklu magni steinefna og andoxunarefna.

Moya Matcha er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki