Hörlöber 40x200 cm. Hvítur

Hörlöber 40x200 cm. Hvítur

Venjulegt verð 7.250 kr

Dásamlegur hörlöber úr silkimjúkri hör sem hentar fyrir öll tilefni og hægt að nota bæði hversdags og spari. 

Stærð 40x200 cm.

  • Framleiddur í Evrópu úr 100% hör
  • Steinþvegin til að ná fram hámarks mýkt
  • OEKO-TEX vottað hráefni og því án allra eiturefna

Þvottaleiðbeiningar.

Má þvo bæði í þvottavél og í höndunum í volgu vatni, allt að 40°. Ef notaður er hærri hiti má gera ráð fyrir að dúkurinn hlaupi um allt að 10%.  Notið milt þvottakerfi og þvottarefni og þvoið með svipuðum lit. Bleikið ekki.

Ekki er mælt með að nota mýkingarefni - hvorki fljótandi né í blöðum - til að ná fram mýkt. Það veikir efnið. Búið er að steinþvo dúkinn og ná þannig fram hámarksmýkt á efninu.

Má fara í þurrkara en til að ná dúknum nokkuð sléttum er gott að láta hann í smá stund í þurrkara og hengja hann svo upp. Svo er að sjálfsögðu tilvalið að hengja út á snúru þegar veður leyfir og fá í hann góða lykt og spara rafmagnið.

Geymið hör á þurrum og köldum stað og fjarri sólarljósi, ekki í plastpoka en koddaver gæti verið sniðugt.

 


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki