Kertastjakatríó - tekk og gler
Kertastjakatríó - tekk og gler
Kertastjakatríó - tekk og gler

Kertastjakatríó - tekk og gler

Venjulegt verð 9.960 kr

Þetta gullfallega kertastjakatríó er með ljósa tekk fætur, hver stjaki sem lítilli glerskál er komið haganlega fyrir í. Þeir eru fallegir og skapa skemmtilega stemmingu allir þrír saman eða einir og sér víðsvegar um heimilið og skapa tengingu í eða á milli herbergja. 

Lengd 13 – 13 – 13

Dýpt 13 – 13 – 13

Hæð 5 – 7,5 – 10

Náttúrulegur tekk og gler
Framleitt í Indónesíu

Um tekk

Tekk er suðrænt harðviðartré sem finnst á Indlandi og suðaustur Asíu. Tekk viðurinn innheldur mikið magn af verndandi olíu sem gerir það að verkum að viðarhluturinn þinn getur enst ævina. Olíuinnihaldið gerir það einnig að verkum að viðurinn þolir mikinn hita og raka. Náttúrulegt tekk má nota bæði inni og úti. Bazar Bizar notar bæði tekkgreinar og tekkrót, en hver er nú munurinn á þessu tvennu? Greinarnar sem notaðar eru falla ýmist til við aðra húsgagnaframleiðslu eða þeim er safnað saman af botni skógarins. Tekk rót hins vegar kemur úr stofni trésins og fæst úr föllnu tré. Athugið að tekktré eru ekki felld til að framleiða eitthvað úr þeim.

Viðhald á tekk
Þú getur strokið af tekk hlutum með mildu volgu sápuvatni. Skolaðu svo með hreinu vatni í tusku til að ná örugglega allri sápu af og látið þorna vandlega. Ef einhverjir blettir sitja eftir fjarlægðu þá varleg en ekki nota svamp þar sem hann getur rispað viðinn.
Ef þú vilt fá langvarandi vörn þá má nota tekk viðarolíu sem veitir vatnsvörn og getur komið í veg fyrir blettamyndun. Ef þú pússar tekk rót nærðu fram fallega gullnum lit. Við veðrun dofnar liturinn á viðnum og hann fær á sig silfurgráan blæ.

 


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki