Tannkremstöflur
ATH. 50% afsláttur vegna dagsetningar.
Tannkremstöflur með mjög mildu mintubragði, ýmist með eða án flúors í áfyllanlegri, endurvinnanlegri og einstaklega handhægri málmdós. Í dósinni er u.þ.b. mánaðarskammtur af tannkremstöflum fyrir einn (miðað við burstun tvisvar á dag)
Notkun: tyggðu eina töflu þangað til hún freyðir og verður kremkennd í munninum (tekur örfáar sekúndur), bleyttu tannburstann og burstaðu eins og þú ert vön/vanur. Og svo spíta – komið!
Tannkremstöflurnar og málmdósin er hvorttveggja framleitt á Bretlandi og dósin er jafnframt ,food safe’
Hægt að fá pakka til að fylla á dósina, bæði með og án flúors. 125 töflur í áfyllingarpakkanum.
Veldu það sem þér hentar best.
Innihald: Sorbitól kalsíumkarbónat, kaólín,natríum bíkarbónat, natríum lauróýl sarkósínat, hydrated silica, maltódextrín gerþykkni, natríum mónóflúorfosfat, magnesíumsterat, mintu arvensis laufolía, mentól, stevíósíð, menta piperita olía.
Flúortöflurnar innihalda 1450 ppm flúor sem er sama magn og í hefðbundnu tannkremi.
• Notið innan árs frá opnun.
• Framleitt með ábyrgum hætti í Bretlandi.
• Pappabumbúðir úr endurunnum pappír sem má jarðgera heima við.
• Málmdós er bæði endurnýtanleg og endurvinnanleg. Samþykkt fyrir matvæli.